Ferðamálasamtök Vestfjarða opna sölusíðu fyrir göngukortin
29/04/2010 15:00Ferðamálasamtökin hafa opnað sölusíðu fyrir gönguleiðakortin sem samtökin hafa gefið út undanfarin ár. Þar geta allir sem hyggjast hafa þau til sölu gengið frá pöntun í ró og næði heima við eða á skrifstofunni. Göngukortin eru sjö og ná eins og kunnugt er yfir allan Vestfjarðakjálkann auk Dalasýslu. Þessi kort taka yfir 300 göngu- og reiðleiðir. Allar leiðirnar eru merktar GPS punktum við upphaf og enda þeirra.
———
Til baka