Spurningar og svör
Hvernig greiði ég fyrir kortin?
Eftir að þú hefur gengið frá pöntun á kortunum í gegnum sölusíðuna þá sérðu allar þær upplýsingar sem þú þarft til að ganga frá greiðslunni. Pöntunin fer ekki af stað fyrr en greiðslan hefur borist inn á reikning Ferðamálasamtaka Vestfjarða. Þú færð upplýsingarnar einnig með tölvupósti. Það er mjög mikilvægt að senda tilkynningu fyrir greiðslunni í gegnum netbankann svo það tefjist ekki að senda kortin til þín.
Athugaðu af kortin á þessari síðu er eingöngu seld til endursöluaðila. Þetta er ekki smásala.
Banki: 156-26-024061
Kennitala: 541186-1319
Netfang fyrir kvittun: vestfirdir@gmail.com
———
Get ég greitt með greiðslukorti fyrir kortin?
Já. Þá hringir þú í síma 897 6525 og gefur upp greiðslukortanúmerið eftir að þú hefur pantað göngukortin.
———
Get ég pantaða kortin með tölvupósti?
Já, það er hægt. Þá sendir þú tölvupóst á vestfirdir@gmail.com. Í tölvupóstinum þarftu að tiltaka númer þeirra göngukorta sem þú ætlar að kaupa og fjölda hvers og eins. Einnig allar upplýsingar sem eiga að birtast á reikningnum, nafn, kennitala og fullt heimilisfang ásamt símanúmeri þar sem hægt er að ná í þig. Þá færð þú póst til baka með upplýsingum um verð og innleggsreikning Ferðamálasamtaka Vestfjarða. Eftir að tilkynning frá þér eða bankanum þínum hefur borist um að greiðslan hafi borist inn á reikning Ferðamálasamtakanna þá fer ferlið hjá okkur af stað.
———
Get ég pantað kortin í gegnum síma?
Já, það er hægt. Síminn er 897 6525. En það er talsvert hentugra fyrir okkur að þú notir sölusíðuna til að panta þau, þar sem Ferðamálasamtök Vestfjarða hafa ekki launað starfsfólk. Það er eins víst að viðkomandi stjórnarmaður sé upptekinn við að þjóna ferðafólki í sínu fyrirtæki þegar þú hringir. En það gengur að sjálfsögðu fyrir. :)
———
Hver er sendingarkostnaðurinn? Hann kemur ekki fram á síðunni.
Allar pantanir eru sendar með póstinum nema annars sé óskað. Pöntunin er send á pósthús sem innheimtir síðan sendingarkostnað við afhendingu samkvæmt gjaldskrá Póstsins.
———
Hvernig er ferlið á pöntuninni eftir að ég hef gengið frá henni?
Þá kemur tilkynning í tölvupósti til umsjónarmanns lagersins sem er á Hólmavík. Hann gerir ekkert fyrr en tilkynning um greiðslu hefur borist með tölvupósti á netfangið vestfirdir@gmail.com.
Eftir að tilkynning um greiðslu hefur borist er hún send með tölvupósti til gjaldkerans sem er á Ísafirði, sem útbýr reikning og prentar hann út í pdf formi og sendir umsjónarmanni lagersins. Þegar reikningurinn hefur borist í tölvupósti frá gjaldkera til umsjónarmanns lagersins þá er kortunum pakkað ásamt reikningi og send á pósthús stílað á það heimilisfang sem þú hefur gefið upp.
———
Get ég pantað aðeins eitt göngukort?
Ne, því miður. Lágmarksfjöldi göngukorta í hverri pöntun eru 10 kort.
———
Geta allir pantað kortin í gegnum þessa síðu?
Þessi sölusíða er eingöngu ætluð endursöluaðilum. Verðin eru heildsöluverð. Kortin eru seld í smásölu á netinu í vefverslun Strandagaldurs . Ef þú ert með verslun eða annan tengdan rekstur þá getur þú gerst endursöluaðili.
Hér er að finna lista yfir aðra endursöluaðila víðsvegar um landið.
———

